Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Íslands í dag. Svanhildur hefur starfað við dagskrárgerð í Íslandi í dag frá árinu 2004 en fram að þeim tíma hafði hún starfað við dagskrárgerð á RÚV í fimm ár bæði í útvarpi og sjónvarpi, m.a. í Kastljósi.
Svanhildur tekur við af Steingrími Ólafssyni sem hefur verið ráðinn fréttastjóri fréttastofu Stöðvar 2.