Hróður Íslendingasagnanna hefur lengi borist vítt um heim og nú síðast til Austurríkis. Austurríska kvikmyndagerðarkonan Gabríela Kafka er nú við tökur á Vatnsdælasögu í Vatnsdal en austuríska kvikmyndafyrirtækið Wokafilm Productions er að vinna efni fyrir sjónvarpsþáttaröð um Ísland og Íslendingasögurnar.
Mun þar meðal annarra sagna verða fjallað um Gísla sögu Súrssonar, Hrafnkelssögu Freysgoða og Vatnsdælasögu.
Sjá nánar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.