Jessica Alba er byrjuð aftur með fyrrverandi kærasta sínum Cash Warren. Leikkonan og kvikmyndaframleiðandinn sáust í rómantískri gönguferð í Kaliforníu á miðvikudaginn.
Vitni sem sá til þeirra sagði að þau hefðu litið út fyrir að vera mjög hamingjusöm, faðmað hvort annað og kysst.
Alba, 26 ára, var nýverið kosin kynþokkafyllsta kona heims á lífi af FHM tímaritinu.
Alba og Warren hittust fyrst árið 2005 við tökur á Fantastic Four myndinni. Það var Alba sem sagði Warren upp í júlí síðastliðnum eftir að hún fékk nóg af því að bíða eftir því að hann bæði hana um að giftast sér.