Victoria Beckham mun leika hlutverk í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Ugly Betty. Önnur þáttaröðin verður sýnd í bandarísku sjónvarpi í lok september og mun fyrrum kryddpían vera gestaleikari í einum þætti og leika fræga konu sem tekur að sér að vera brúðarmær.
Frú Beckham lék hún sjálfa sig í myndinni Spice World 1997 en hún var einnig aðalhetjan í sinni eigin heimildamynd, Victoria Beckham Coming to America sem birtist fyrir nokkrum mánuðum síðan og fékk afar slæma dóma hjá gagnrýnendum vestra.