Bandaríska söngkonan hélt tónleika í Laugardalshöll í kvöld ásamt hljómsveit sinni, The Handsome Band, en Norah er á tónleikaferð um heiminn að fylgja eftir þriðju breiðskífu sinni, „Not too late“, sem kom út janúar. Tónlistarkonan fékk hlýjar viðtökur enda á hún marga aðdáendur hér á landi.