Breskur miðill: Díana vill að Paltrow leiki sig

Díana prinsessa er hún giftist Karli Bretaprinsi árið 1981.
Díana prinsessa er hún giftist Karli Bretaprinsi árið 1981. ap

Breski miðillinn Kenny Kingston hefur greint frá því að hann hafi verið í sambandi við Díönu prinsessu að handan og að hún hafi komið þeirri ósk sinni á framfæri að gerð verði kvikmynd um líf hennar með bandarísku leikkonunni Gwyneth Paltrow í aðalhlutverki. Þetta kemur fram á fréttavef Ekstra Bladet.

Kongston mun hafa náð sambandi við prinsessuna fyrir hönd fréttavefjarins contactmusic en fram kemur á þeim vef að miðillinn hafi m.a. haft milligöngu um að ná sambandi við fólk að handan fyrir Elísabetu Englandsdrottningu, Margréti systur hennar og Marilyn Monroe.

Kingston er sagður hafa notað kristalssælgætisskál frá Ritz hótelinu í París til að ná sambandi við hana og mun prinsessan hafa byrjað samtalið á því að staðfesta að hún hefði tekiðfengið sér sælgæti úr skálinni skömmu áður en hún yfirgaf hótelið kvöldið sem hún lést.

Þá kom hún ósk sinni um að gerð verði kvikmynd um líf hennar á framfæri og fór sérstaklega fram á að Paltrow færi með aðalhlutverkið í henni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast það að ganga of langt í þeim efnum. Vertu á varðbergi gegn freistingum og gylliboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast það að ganga of langt í þeim efnum. Vertu á varðbergi gegn freistingum og gylliboðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach