Byrjað var í dag að selja miða á tónleika, sem Rúnar Júlíusson mun halda ásamt stórri hljómsveit í Laugardalshöll 27. október. Meðal gesta á tónleikunum verða Bubbi Morthens, Björgvin Halldórsson, Magnús Kjartansson, Baggalútsmenn, Shady Owens, Doktor Gunni, Gylfi Ægisson, Hermann Gunnarsson og Larry Otis.
Á tónleikunum verða flutt lög Hljóma, Trúbrots, Lónlí Blú Bojs GCD, Áhafnarinnar á Halastjörnunn, Baggalúts og frá sólóferli Rúnars.
Miðar eru til sölu á midi.is, í Skífuverslunum í Reykjavík og BT verslunum úti á landi.