Fimm myndir koma til greina sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2007. Þær eru Mýrin, Köld slóð, Foreldrar, Astrópía og Veðramót.
Kosningin fer fram með rafrænum hætti dagana 24-27 september og verður öllum á kjörskrá ÍKSA sendur rafrænn kjörseðill. Óskarstilnefningarnar verða svo tilkynntar 22. janúar.