Oprah Winfrey gleymir ekki hundunum sínum

Oprah Winfrey
Oprah Winfrey Reuters

Sjónvarpskonunni Oprah Winfrey er umhugað um hundana sína samkvæmt því sem fram kemur í tímaritinu Australia's Woman's Day. Tímaritið hefur eftir heimildarmanni að í erfðaskrá Winfrey sé gert ráð fyrir því að hundarnir hennar fjórir fái 30 milljónir dala að henni látinni.

Í tímaritinu kemur fram að Winfrey sé milljarðamæringur og því sé það ekki ofrausn af henni að eftirláta hundunum 30 milljónir dala til þess að framtíð þeirra sé tryggð falli hún frá á undan þeim.

Oprah Winfrey er ógift og barnlaus en í sumar slitnaði upp úr sambandi hennar og Stedman Graham en þau byrjuðu saman árið 1986 og trúlofuðu sig árið 1992.

Segja slúðurmiðlar að Winfrey hafi greitt Graham 250 milljónir dala við sambandsslitin til þess að tryggja það að hann myndi ekki ræða samband þeirra né sambandsslitin við fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir