Enn berast fréttir af velgengni Mýrarinnar, en franska dreifingarfyrirtækið Memento Film Distribution hefur keypt hana til dreifingar þar í landi. Þetta kemur fram á fréttavef Lands og sona. Myndin ku hafa fengið góðar viðtökur áhorfenda á kvikmyndahátíðinni í Toronto og hafa hátt í tuttugu hátíðir um heim allan falast eftir henni.
Mýrin fer næst á kvikmyndahátíðina í Kaupmannahöfn sem hefst í næstu viku og þaðan til London en sú hátíð hefst 17. október.