Útgáfufyrirtækið John Blake Publishing í Bretlandi hefur kynnt útgáfu sína á bókinni "Sex, Lies and Supermarkets", eftir Jonathan Edwards og Ian Griffiths, en hún kemur út innan skamms.
Á heimasíðu útgáfunnar kemur fram að Jonathan Edwards er lögfræðingur og endurskoðandi. Ian Griffiths er rannsóknarblaðamaður hjá breska blaðinu Guardian og var m.a. tilnefndur til bresku viðskiptablaðamannaverðlaunanna árin 2004-6. Hann er einnig höfundur bókarinnar "Creative Accounting".