Grínleikarinn Will Ferell hyggst bjóða upp aukahlutverk í næstu mynd sinni og mun ágóðinn renna til góðgerðarstarfsemi. Uppboðið verður þann 26. september og fær hæstbjóðandi að fylgja Ferell í kvöldverð í tengslum við golfkeppni sem haldin er til að safna peningum fyrir krabbameinssjúka og í kaupbæti fylgir hlutverk í einu atriði í kvikmyndinni Step Brothers sem verður frumsýnd á næsta ári.