O.J. Simpson ákærður fyrir mannrán

O.J. Simpson var í Las Vegas í kvöld ákærður fyrir ýmis afbrot, þar á meðal mannrán og vopnað rán. Simpson fær ekki kost á að losna gegn tryggingu og á yfir höfði sér allt að ævilöngu fangelsi verði hann fundinn sekur. Ákæran verður þingfest á morgun.

Simpson, sem er fyrrum ruðningshetja og kvikmyndaleikari, var handtekinn á sunnudag grunaður um líkamsárás og vopnað rán. Hann var í kvöld ákærður fyrir þessi afbrot og mannrán og samsæri um að fremja mannrán að auki.

Þrír aðrir menn voru ákærðir ásamt Simpson en lögregla telur að þeir hafi ruðst inn í hótelherbergi í Palace Station spilavítinu og stolið ýmsum munum frá tveimur söfnurum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir