Austurríski mótorhjólakappinn Markus Stöckl setti um helgina nýtt met í bruni niður fjallshlíð þegar hann ók hjóli á 210,4 km hraða á klukkustund niður snævi þakta hlíð fjallsins La Parva í Chile. Ferðin niður fjallið tók 40 sekúndur og Stöckl, sem fengið hefur viðurnefnið Herkúles, varð að halda niðri í sér andanum á leiðinni niður svo ekki myndaðist móða á hlífðarglerinu á hjálminum hans.