Leikstjórinn og einn besti vinur Íslands, Quentin Tarantino, sat fyrir í breska tímaritinu Telegraph á dögunum. Það væri kannski ekki fréttaefni í íslensku blaði nema kannski fyrir þær sakir að Tarantino klæddist húfu merktri 66° Norður. Sömu húfu mætti hann með í viðtal í spjallþætti Jonathans Ross á BBC á dögunum.
Aðstandendur 66° Norður á Íslandi eru að vonum ánægðir með auglýsinguna og segja að með þessu uppátæki Tarantinos sé hægt að ná til mun breiðari hóps fólks en með því "takmarkaða fjármagni sem fyrirtækið hefur í alþjóðamarkaðssetningu".