Í GÆR var Þórhalli Gunnarssyni, dagskrárstjóra Sjónvarpsins, afhentur undirskriftalisti til stuðnings endurráðningu Randvers Þorlákssonar leikara í Spaugstofunni.
Rúmlega tvö þúsund manns höfðu skrifað nafn sitt á listann þegar Halldór Eldjárn, sem stóð fyrir undirskriftasöfnuninni, afhenti hann í gær.
Þær fregnir bárust í síðustu viku að Randveri hefði verið sagt upp störfum hjá Spaugstofunni og hrinti Halldór undirskriftasöfnuninni strax af stað á vefsíðunni: www.petitiononline.com/randver7 við góðar undirtektir.