Þursarnir og Caput saman á tónleikum á þorra

Þursaflokkurinn í þá gömlu góðu.....
Þursaflokkurinn í þá gömlu góðu.....

Hinn íslenzki þursaflokkur og Caput ætla að standa saman að tónleikum í Laugardalshöll þann 23. febrúar á næsta ári. Þessar tvær sveitir, sem telja samtals um 30 hljóðfæraleikara, munu flytja öll helstu lög Þursaflokksins í viðhafnarútsetningum, en í febrúar á næsta ári halda Þursarnir upp á 30 ára afmæli sitt, líkt og fram kom í Morgunblaðinu í byrjun ágúst.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Guðni Franzson mun stjórna hljómsveitinni og þá verður frumflutt ný svíta eftir Ríkarð Örn Pálsson, góðvin Þursa til margra ára, sem mun byggja á Þursamúsíkinni.

Þursaflokkinn skipa sem fyrr: Ásgeir Óskarsson á trommum, Egill Ólafsson sér um söng og hljómborð, Rúnar Vilbergsson á fagott, Tómas Magnús Tómasson á bassa og Þórður Árnason á gítar. Staðgengill Karls Jóhanns Sighvatssonar heitins á Hammond orgelinu verður svo sjálfur Eyþór Gunnarsson.

Þursaflokkurinn kom fyrst fram í febrúar 1978 og starfaði óslitið til 1982. Á ferlinum léku Þursar á nær 300 tónleikum í níu löndum, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan