Leikarinn George Clooney brákaði rifbein í bifhjólaslysi í New Jersey í dag, að sögn talsmanns leikarans. Með leikaranum var unnusta hans, Sarah Larson og fótbrotnaði hún í slysinu. Var gert að sárum parsins á heilsugæslustöðinni Palisades, að sögn talsmannsins.