Jennifer Lopez útilokar ekki að fara í lýtaaðgerðir er fram líða stundir ef sér finnist útlit sitt fara að versna. „Maður veit aldrei. Ég myndi ekki útiloka það,“ sagði hún í viðtali við BBC.
Hún sagði ennfremur í viðtalinu að hún áfelldist engan sem hafi farið í lýtaaðgerð. „Maður veit aldrei hvernig manni kemur til með að líða þegar maður verður kominn á vissan aldur,“ sagði hún.