Rúmlega tvítugur barþjónn kom fyrir rétt í Ástralíu í dag, ákærður fyrir að hafa veitt viðskiptavini glas af gólfþvottalegi. Verjandi barþjónsins segir þetta hafa verið misheppnaðan „brandara.“ Viðskiptavinurinn varð fárveikur af að drekka gólfþvottalöginn og fékk opin sár á húðina. Barþjónninn var rekinn.
Lögreglan greindi réttinum frá því að umræddur barþjónn, Emily Craig, væri þekktur fyrir prakkarastrik sín, en Craig færði viðskiptavininum gólfþvottalöginn í drykkjusamkvæmi í næturklúbbnum þar sem hún vann klukkan sex að morgni. „Þetta var misheppnaður brandari á óguðlegum tíma sólarhrings,“ sagði verjandi Craigs.
Dómur hefur ekki verið kveðinn upp yfir Craig, en rétti var frestað fram í febrúar.