Leikarinn Kiefer Sutherland var handtekinn í nótt í Los Angeles fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Vakti ökulag leikarans athygli lögreglu en hann tók ólöglega u-beygju. Var honum sleppt úr haldi lögreglu nokkrum klukkustundum síðar eftir að hafa greitt 25 þúsund dala tryggingu. Sutherland mun mæta í réttarsal þann 16. október þar sem mál hans verður tekið fyrir.