Bílabíó, sundbíó með hákörlum, miðnæturbíó, málþing og tónleikar með fjölskylduhljómsveitinni Denielson eru meðal þeirra fjölmörgu viðburða sem framundan eru á hinni árlegu alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem hefst í dag. Hátíðin stendur til 7. október og þurfa kvikmyndaunnendur að skipuleggja tíma sinn vel næstu daga því tæplega níutíu kvikmyndir af öllum stærðum og gerðum eru í boði.