Leikkonan Lindsay Lohan er ekkert á leið frá meðferðarstofnuninni í Utah þar sem hún hefur verið undanfarnar vikur. Þetta segir móðir stúlkunnar í tölvupósti til fjölmiðla í dag en undanfarið hafa birst fréttir um að Lohan verði útskrifuð um helgina.
Undir þetta tekur heimildamaður People tímaritsins. Sá segir að Lohan muni ekki yfirgefa meðferðarstofnunina Cirque Lodge á næstunni. Hún þurfi nokkrar vikur til viðbótar til þess að ná áttum en allt sé á leið í rétta átt hjá leikkonunni sem var handtekin fyrir að keyra ölvuð í byrjun ágúst. Hún hefur jafnframt verið dæmd fyrir að keyra undir áhrifum kókaíns og án ökuleyfis.