Radcliffe vill leika homma

Daniel Radcliffe.
Daniel Radcliffe. Reuters

Breski leikarinn Daniel Radcliffe, sem er langþekktastur fyrir hlutverk sitt sem galdrastrákurinn Harry Potter, hefur mikinn áhuga á að leika samkynhneigðan njósnara.

Radcliffe, sem er 18 ára gamall, vill fara með aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar Another Country sem gerð var árið 1984, en myndin fjallar um ungan dreng á fjórða áratug síðustu aldar sem verður ástfanginn af besta vini sínum, en verður síðar njósnari sem starfar fyrir stjórnvöld í Sovétríkjunum.

Radcliffe, sem hefur vakið mikla athygli fyrir að koma nakinn fram í leikritinu Equus í Lundúnum, segist hafa mikinn áhuga á að leika persónur sem eru að uppgötva sjálfar sig kynferðislega.

„Ég myndi aldrei leika homma bara til þess að leika homma. En ef handritið er gott og þetta er góður karakter er ég tilbúinn," sagði leikarinn ungi á blaðamannafundi fyrir stuttu. Í sinni nýjustu kvikmynd, December Boys, leikur Radcliffe í sinni fyrstu kynlífssenu, og því ljóst að leikarinn ungi þroskast hratt þessa dagana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar