Bandaríski slúðurvefurinn TMZ.com kveðst vita upp á hár hvers vegna Britney Spears missti forræðið yfir börnum sínum. Hún hafi nefnilega virt algjörlega að vettugi fyrirmæli sýslumannsfulltrúans um hvað hún þyrfti að gera til að halda sameiginlegu forræði með Kevin Federline.
Í síðasta mánuði hafi Scott Gordon, fulltrúi sýslumannsins í Los Angeles, gefið Britney fyrirmæli um hvað hún þyrfti að gera. Í fyrsta lagi að fara á fund ráðgjafa vegna lyfjafíknar, en hún gerði það ekki. Í öðru lagi að fara í lyfjapróf, en það gerði hún ekki heldur.
Í þriðja lagi átti hún að fara á námskeið í barnauppeldi, en hún sleppti því. Í fjórða lagi átti hún að skrifa undir dómsúrskurð, en það lét hún undir höfuð leggjast.
Og á föstudaginn bannaði fulltrúinn bæði Britneyju og Kevin að aka með drengina í bíl án þess að þau væru með ökuskírteini sem gildir í Kaliforníu. Fulltrúinn varð lítt hrifinn þegar TMZ.com birti myndband af Britneyju akandi um með strákana - segir TMZ.com.