Jennifer Aniston í sumarfríi með Orlando Bloom

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. Reuters

Jennifer Aniston og Orlando Bloom sáust saman í fríi í Mexíkó, þar sem hún var í sólbaði í efnislitlu bikiníi og Bloom horfði á fullur aðdáunar, að því er slúðurvefurinn Hollywoodtuna.com hefur eftir heimildamanni sem var í fríi á sama stað.

„Þau reyndu að láta lítið á sér bera, en það fór ekki á milli mála að þau voru saman. Þau eru ákaflega huggulegt par,“ sagði heimildamaðurinn.

Aniston er 38 ára og Bloom er þrítugur. Hún var síðast orðuð við bresku fyrirsætuna Paul Sculfor, en upp úr því sambandi slitnaði að sögn vegna þess að hún vildi stofna fjölskyldu, en hann leggja áherslu á fyrirsætuferilinn.

Bloom hefur ekki verið í föstu sambandi síðan hann hætti með leikkonunni Kate Bosworth í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir