Leikkonan Lindsay Lohan hefur verið útskrifuð af meðferðarstofnun þar sem hún hefur verið undanfarna tvo mánuði, að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum.
Bandaríska tímaritið People greinir frá því að hin 21s árs gamla Lohan hafi yfirgefið meðferðarstofnun í Utah þar sem hún hefur dvalið frá því í ágúst.
„Ég er afar stolt af henni,“ er haft eftir móður Lohan. „Þetta var byrjað að fara úr böndunum. Hún tók til sinna ráða,“ sagði hún.
Lohan viðurkenndi í ágúst að líf hennar væri orðið „óviðráðanlegt“ sökum þess að hún væri orðin háð áfengi og vímuefnum.
Hún skráði sig í meðferð nokkrum vikum eftir að hún hafði verið handtekin fyrir að aka undir áhrifum áfengis í júlí sl.