Eiginkona Karls Bretaprins, Camilla, varð amma í dag, er sonur hennar, Tom Parker Bowles, og eiginkona hans, Sara, eignuðust stúlku, að því er Buckinghamhöll tilkynnti. Hefur stúlkan hlotið nafnið Lola. Talsmaður skrifstofu prinsins sagði að Camilla væri „alveg í skýjunum.“