Lindsay Lohan gæti fengið hlutverk Playboy-kanínu í nýrri kvikmynd - að því tilskyldu að hún haldi sér edrú, að því er leikstjóri myndarinnar segir. Um er að ræða mynd um ævi Hugh Hefners, stofnanda Playboy.
Lohan lauk í síðustu viku tveggja mánaða áfengis- og fíkniefnameðferð.
Leikstjóri myndarinnar um Hefner, Brett Ratner, sagði við E! Online: „Hún hefur mikla hæfileika - þegar hún er edrú. Hún væri frábær í hlutverk Playboy-kanínu.“