„Við fengum hana í prufur og þá kom í ljós að hún var akkúrat það sem við vorum að leita að. Þannig að við erum mjög spennt að fara að vinna með henni," segir Þór Freysson, pródúsent hjá Stöð 2, en fegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir hefur verið ráðin kynnir í þáttunum Bandið hans Bubba.
„Hennar hlutverk er svipað hlutverki bæði Simma og Jóa og Höllu Vilhjálms. Hún kom mjög vel út úr þessum prufum enda gullfalleg, en um leið alveg vaðandi „talent". Hún á bara að vera í sjónvarpi, þessi manneskja."
Í Bandinu hans Bubba er leitað að hæfileikaríku tónlistarfólki, en fyrstu áheyrnarprufur fara fram í Bolungarvík annað kvöld.
Úrslitaþættirnir verða svo í beinni útsendingu eftir áramót.