Kryddpían Mel C er komin á japanskt sérfæði til þess að stækka brjóst sín áður en sönghópurinn heldur af stað í fyrirhugaða tónleikaferð. Samkvæmt Bang Showbiz er Mel C með minnstu brjóstin í hópnum.
Í viðtali við BBC Radio 1 segist Mel C borða kexkökur sem nefnast F-Cup og að það sé frábært ef brjóstin stækki við að borða kökurnar. Eiga kökurnar að innihalda 68,7 kaloríur hver og innihalda transfitusýrur sem leita beint á brjóstasvæðið auk jurtalyfsins Pueraria Mirifica. Samkvæmt innihaldslýsingu eiga konur að upplifa það að brjóst þeirra stækki um að minnsta kosti eina stærð borði þær tvær kexkökur á dag.
En Mel C er ekki eina kryddpían sem er að vinna að því að breyta útliti sínu fyrir tónleikaferðina sem hefst í Vancouver í Kanada þann 2. desember næstkomandi. Victoriu Beckham er umhugað um að þær líti allar vel út í ferðinni og er sjálf byrjuð í ströngu aðhaldi og æfir að kappi fyrir ferðina.
Heimild Bang Showbiz hermir að Victoria hafi greint stúlkunum í hópnum frá því að leyndarmálið á bak við það að ná fyrra formi sé að gera 200 magaæfingar á dag og borða fátt annað en sojabaunir, jarðaber og kál.