Kvikmyndaleikkonan Nicole Kidman hefur greint frá því að hún hafi verið einmana og einangruð og að henni hafi þótt lífið lítils virði þegar hún var einhleyp. „Þegar ég var ein einangraðist ég mjög mikið,” segir hún í viðtali við breska blaðið Daily Mirror „Ég var mjög einmana og átti erfitt með að umgangast fólk. Ég gerði mér grein fyrir því að jafnvel þótt maður hafi marga fallega hluti í kring um sig, þá skiptir það ekki svo miklu máli, hafi maður ekki engan til að deila því með."
Þá segir hún að hún og eiginmaður hennar söngvarinn Keith Urban hafi verið tvær einmana sálir er þau hittust og að þau hafi bæði verið tilbúin til þess að opna sig fyrir annarri manneskju. „Við vorum blanda af hugrekki og ótta. Það er erfitt að vera einn.”
Kidman segist einnig vera mjög hreykin af Keith, sem nýlega lauk 90 daga áfengismeðferð, og fagna því að eiga einhvern að til að deila með bæði gleði og sorgum lífsins. „Ég elska hann fyrir heiðarleika hans og hugrekki. Hann er einfaldlega dásamlegur maður og ég er mjög heppin að eiga hann að,” segir hún.