Fleiri fölsuð Airwaves-arbönd hafa fundist á hátíðinni að þessu sinni en undanfarin ár, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Svo virðist sem falsarar séu farnir að leggja meiri tíma og metnað í fölsunina. Allt eftirlit á tónleikastöðum hátíðarinnar hefur því verið hert - enda mjög alvarlegt mál að fölsuð armbönd séu í umferð. Allir sem teknir eru með fölsuð armbönd á hátíðinni eru umsvifalaust kærðir til lögreglu.
Að öðru leyti eru skipuleggjendur hátíðarinnar hæstánægðir með hvernig til hefur tekist til þessa - og hve jöfn og góð dreifing er á tónleikagestum yfir níu aðal tónleikastaði hátíðarinnar. Erlendir blaðamenn og bransafólk hafa lýst yfir mikilli ánægju með hátíðina - og hve mikið af frambærilegum innlendum hljómsveitum hafa stigið á stokk.
Einnig hefur hliðardagskrá hátíðarinnar, hið svokallaða off-venue prógram, sett svip sinn á miðborgina þar sem tónleikar fara fram í fjölmörgum verslunum og kaffihúsum í miðborginni, sem og í Norræna húsinu.