Britney ók yfir fótinn á ljósmyndara

Britney Spears undir stýri.
Britney Spears undir stýri. AP

Það á ekki af Britney Spears að ganga. Fyrr í vikunni var hún svipt umgengnisrétti við drengina sína tvo, og í gærkvöldi ók hún yfir fótinn á ljósmyndara er hún reyndi að smeygja bíl sínum fram hjá ljósmyndaraþvögunni sem fylgir henni hvert fótmál.

Britney var á leið út úr bílastæðahúsi í Beverly Hills á hvíta Benz-blæjubílnum sínum þegar einn ljósmyndaranna féll í götuna, að því er sjá mátti á myndbandi sem tekið var á staðnum, en svo virtist sem eitt dekkið á bílnum hennar hafi farið yfir fótinn á honum.

Haft var eftir ljósmyndurum að þeim hafi sýnst Britney tárast, en hún ók á brott og þeir hlupu á eftir.

Ekki var þetta eina ólánið hennar í gær, því að nýja lagið hennar, „Gimme More,“ féll um þrjú sæti, niður í það sjötta, á Billboard Hot 100-listanum í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir