Starfsmenn plötufyrirtækisins One Little Indian eru komnir til landsins til að sjá Mínus spila í kvöld og eru þeir með enska blaðamenn í för með sér. Heimsóknin er liður í að hrinda af stað útgáfu á nýjustu plötu Mínuss, The Great Northern Whale Kill, sem koma á út í febrúar næstkomandi í Bretlandi. Mínus stígur á svið Nasa kl. 1 eftir miðnætti. Strax á eftir spilar bandaríska sveitin !!!.