Sjónvarpsmyndavélar munu fylgja Parísi Hilton á ferð hennar til Rúanda, en gera á raunveruleikaþátt um ferð hennar, og verður hann hluti af nýrri þáttaröð sem heitir "Mannvinir." París heldur til Afríku í næsta mánuði, en góðgerðarsamtökin "Playing for Good," sem fræga fólkið stendur að, styrkja Parísi til fararinnar.
París lýsti því yfir fyrir skömmu, eftir að hafa setið 23 daga á bak við lás og slá, að hún væri "gerbreytt manneskja." Hún hefur ennfremur sagt að hún sé mjög kvíðin fyrir Afríkuferðinni, en kveðst staðráðin í að vekja athygli umheimsins á fátækt og stríðshörmungum í Rúanda.
Raunveruleikaþættirnir heita "The Philanthropist," sem þýða má á íslensku sem "Mannvinurinn," eða "Góðgerðarstarfsemi."