Þess hefur verið vandlega gætt við tökur á myndinni „Love Guru“ að fæturnir á Jessicu Alba sjáist ekki í neinu dansatriði. Ástæðan er sú, að hún er hræðilega vondur dansari, og stenst í þeim efnum engan samanburð við aukaleikara í myndinni.
„Hún hefur komið afskaplega vel fram og látið lítið fara fyrir sér, en hún er bara alveg skelfilegur dansari,“ er haft eftir heimildamanni sem vann að gerð myndarinnar.
Sama saga er reyndar sögð af mótleikara Jessicu, Mike Myers, sem hefur átti í hinum mestu erfiðleikum með að fóta sig í dansatriðum.