Sá orðrómur hefur gengið fjöllunum hærra frá byrjun þessa árs í Hollywood að leikararnir Reese Witherspoon og Jake Gyllenhaal séu að slá sér upp.
Aldrei hefur verið neitt staðfest í þeim efnum annað en þau séu góðir vinir.
Hér sjást þau mæta saman á kynningu á nýjust mynd sinni Rendition á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Róm í gær. Witherspoon og Gyllenhaal fara bæði með stórt hlutverk í myndinni.
Sagt er að það hafi einmitt verið við tökur á Rendition sem vinskapur þeirra hafi farið að þróast út í eitthvað annað og meira.