Leikkonan Sarah Jessica Parker, þykir hafa lítinn kynþokka samkvæmt nýrri könnun Maxim.com en hún er helst þekkt fyrir að hafa leikið aðalhlutverkið í Beðmálum í borginni þar sem hún fór með hlutverk Carrie Bradshaw. Voru það karlmenn sem völdu þær konur sem höfðu minnstan kynþokka í könnun Maxim.com.
Í öðru sæti listans er breska söngkonan Amy Winehouse og Sandra Oh sem leikur í Grey's Anatomy er í því þriðja.
Þær fimm konur sem þátttakendur í skoðanakönnun Maxim.com töldu hafa minnstan kynþokka:
1. Sarah Jessica Parker
2. Amy Winehouse
3. Sandra Oh
4. Madonna
5. Britney Spears