Rúnar Júlíusson fór yfir tónlistarferil sinn í Laugardalshöll í gærkvöldi. Þar kom hann fram ásamt stórri hljómsveit og flutti mörg þekktustu lög Hljóma, Trúbrots, Lónlí Blú Bojs, GCD og fleiri sveita sem hann hefur verið í. Margir gestir komu fram, svo sem Bubbi Morthens, Björgvin Halldórsson, Magnús Kjartansson, Gylfi Ægisson, Shady Owens.