Fyrrum fyrirsætan Heather Mills eyddi 100 þúsund pundum, 12,4 milljónum króna í afmælsiveislu dótturinnar, Beatrice, en þema afmælisveislunnar var Disney. Beatrice hélt upp á fjögurra ára afmælið um helgina og mættu 60 vinir hennar í veisluna.
Beatrice er dóttir Mills og fyrrverandi eiginmanns hennar, Paul McCartney. Mills réð leikara til þess að koma fram sem Mjallhvít, Skellibjalla og Öskubuska til þess að gleðja börnin í afmælisveislunni sem haldin var á heimili Mills í East Sussex.
Þrátt fyrir miklar deilur hjónanna fyrrverandi mætti McCartney í afmælið en stoppaði stutt við eða í 20 mínútur, samkvæmt slúðurblaðinu bresk Sun.