Hljómsveitin Ný dönsk heldur upp á tvítugsafmælið um þessar mundir með hljómleikum í Reykjavík og á Akureyri. Tvennir tónleikarar eru í Borgarleikhúsinu í kvöld, þeir fyrri eru búnir og þeir síðari að hefjast. Þá verða tvennir tónleikar á Akureyri eftir viku í samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Uppselt var á tónleikana í kvöld.