Timberlake snuðar aðdáendur sína

Justin Timberlake
Justin Timberlake Reuters

Justin Timberlake olli áströlskum aðdáendum sínum miklum vonbrigðum á dögunum þegar hann hélt tvenna tónleika í borginni Brisbane. Fjölmargir þeirra höfðu safnast saman fyrir utan veitingastað einn í borginni þar sem Timberlake sat að snæðingi en í stað þess að ganga út um aðaldyrnar og veita þeim eiginhandaráritanir, líkt og hann hafði lofað á leiðinni inn á staðinn, læddist hann út um bakdyrnar óséður og skildi aðdáendurna eftir með sárt ennið. Til að bæta gráu ofan á svart mun Timbarlake ekki hafa séð sér skylt að skilja eftir þjórfé á veitingastaðnum, þrátt fyrir að hafa fengið máltíðina ókeypis. Fjölmiðlar í Brisbane urðu svo fúlir á móti eftir að Timberlake móðgaði ljósmyndara Courier Mail sem sat fyrir söngvaranum en sá sagði við Timberlake að sonur sinn yrði einkar glaður með pabba sinn ef hann sæi hann núna. Því á Timberlake að hafa svarað: "Ég á erfitt með að trúa því að þér sé leyft að fjölga þér." Þegar söngvarinn var svo spurður hvernig honum líkaði Brisbane á Timberlake að hafa muldrað eitthvað og gengið svo niðurlútur í burtu. Þvílík díva!

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir