Vandræðagemsarnir Pete Doherty og Amy Winehouse munu ekki syngja saman á myndbandaverðlaunahátíð MTV í Munchen í kvöld. Hávær orðrómur um þetta hefur verið uppi í tónlistarheiminum undanfarna daga en talsmaður Babyshambles, hljómsveitar Dohertys, segir ekkert hæft í þessu.
Babyshambles og Winehouse koma þó fram á hátíðinni í kvöld auk stilltari listamanna á borð við Avril Lavigne, Foo Fighters og Mika.