Bítillinn Paul McCartney var gripinn glóðvolgur um síðustu helgi er mynd var tekin af honum og Nancy Shevell, stjórnarmanni í almenningssamgangnakerfi New York ríkis, kyssast. Birtist myndin í breska slúðurblaðinu The Sun.
Samkvæmt The Sun sást til þeirra á sushi stað í Amagansett á Long Island og á útikaffihúsi. Á myndinni sem The Sun birti sjást þau kyssast í framsæti bifreiðar.
Samkvæmt AP fréttastofunni svaraði talsmaður McCartney's ekki símtölum frá fréttastofunni og símanúmer Shevell á Long Island var ótengt.
Shevell, sem útskrifaðist frá ríkisháskólanum í Arizona, er varaforstjóri fjölskyldufyrirtækisins New England Motor Freight.
Shevell, sem var áður gift þekktum lögmanni, Bruce A. Blakeman, á hús á Long Island líkt og Bítillinn fyrrverandi.