Jennifer Lopez staðfesti að hún væri ólétt

Marc Anthony og Jennifer Lopez
Marc Anthony og Jennifer Lopez Reuters

Söngkonan Jennifer Lopez hefur loks greint opinberlega frá því að hún og eiginmaður hennar, Marc Anthony, eigi von á barni. Þar með hefur Lopez bundið enda á vangaveltur sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði.

Lopez, sem er 39 ára gömul, tilkynnti þetta á tónleikum í Flórída. Hún greindi hinsvegar ekki frá því hvenær hún eigi von á barninu. Í kjölfarið smellti Anthony kossi á maga eiginkonu sinnar og sagði svo: „Ég vissi ekki að hún ætlaði að segja frá þessu.“

Lopez og Anthony, sem hafa verið á hljómleikaferðalagi saman, gengu í það heilaga árið 2004.

Í október missti hönnuðurinn Roberto Cavalli óvart út úr sér samtali við fjölmiðla að Lopez væri ólétt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir