Leikkonan Jennifer Aniston á að vera skotin í bandarísku ruðningshetjunni Tom Brady sem spilar með New England Patriots. Hins vegar á Brady unnustu, brasilísku fyrirsætuna Gisele Bundchen.
Aniston hefur áhuga á að fá Brady til þess að sitja fyrir með sér í auglýsingaherferð heilsudrykkjarins SmartWater en hún á hlut í fyrirtækinu sem framleiðir drykkinn.