Britney Spears heldur að bölvun hvíli á sér, og er farin að sanka að sér lukkugripum í þeirri von að gæfuhjólið taki að snúast sér í vil. Hún er búin að missa forræðið yfir sonum sínum, falla á lyfjaprófi sem hún var dæmd í, á yfir höfði sér fjölda dóma fyrir umferðarlagabrot og gerði sig að athlægi með framkomunni á MTV-verðlaunahátíðinni.
Heimildamaður tjáði bandaríska tímaritinu OK! að Britney hefði farið í verslunarleiðangur og keypt sér fatnað með myndum af fjögurra laufa smára í þeirri von að heppnin fylgdi með í kaupunum.
"Hún sagðist sannarlega þurfa á heppni að halda eftir undanfarna mánuði. Hún sagði í gríni að hún myndi jafnvel fara að ganga með kanínufót ef það mætti verða til að lyfta af sér bölvuninni," sagði heimildamaðurinn.
Synir Britneyjar eru hjá pabba sínum, Kevin Federline, og hefur fyrrverandi kona hans, Shar Jackson, aðstoðað við uppeldið. Kevin og Shar eiga tvö börn saman, og hún segir að systkinunum komi öllum vel saman.