Ágúst Örn Guðmundsson, 19 ára nemandi í Menntaskólanum á Akureyri, var kjörinn herra Ísland í kvöld á Broadway. Hann varð einnig sigurvegari í símakosningu áhorfenda á Skjá einum, þar sem keppnin var sýnd í beinni útsendingu.
Í öðru sæti varð Georg Alexander Valgeirsson, 27 ára reykvískur rafeindavirki, og í þriðja sæti Matthías Örn Friðriksson, 21 árs nemi í Háskólann á Akureyri.
Vinsælasti keppandinn var valinn Garðar Jóhann Garðarsson og Zihr-herrann var valinn Ingvi Hrafn Þórsson.