Kvikmyndaleikkonan Pamela Anderson hefur vísað á bug sögusögnum um að mánaðargamalt hjónaband hennar og Rick Salomons standi brauðfótum. Segir hún ástæðu þess að hún gangi ekki með giftingarhring vera þá að það stangist á við siðferðisvitund hennar að kaupa demanta.
„Hafið þið ekki séð myndina „Blood Diamond"? Allt sem ég þarf á fingur mér er Rick," segir hún en í myndinni, sem hún vísar til er fjallað um ólöglega demantaverslun.
Leikkonan tekur nú auglýsingaherferð vegna þakkargjörðarhátíðarinnar þar sem hún hvetur fólk til að halda hátíðina án þess að neyta kalkúnakjöts.